Góður dagur

Á leið minni frá Odda út í Bóksölu stúdenta ákvað ég að koma við hjá Guðrúnu Bóasdóttur á nemendaskránni. Það var hin besta ákvörðun þar sem Systa bauð mér umsvifalaust í hádegisverð með sér og gaf mér svo kaffi á eftir. Takk Systa!!

Svo fór ég og eyddi smá peningum í Bóksölunni. Þó ekki miklum, þar sem ég ákvað að kaupa bara eina námsbók af fjórum. Hver nennir hvort eð er að vera að lesa allar þessar bækur?!

* * *

MS-félagið tók í dag í notkun nýtt spjallsvæði. Ég vona svo sannarlega að umræðurnar þar eigi eftir að verða líflegri en á gamla svæðinu.

Heimasíða félagsins hefur einnig verið í stöðugri framför og er bara ekki svo galin. Ég er allavega búin að fara mun oftar inn á hana síðustu vikur í leit að upplýsingum en ég gerði í mörg ár samanlagt þar á undan. Húrra fyrir Svavari!!

One Response to “Góður dagur”

  1. Guðrún Bóasdóttir(Systa) Says:

    Verði þér að góðu Steinunn, það er alltaf gott að fá góðar heimsóknir í Nemendaskrá