Dansiball
Á morgun ætla ég á dansleik á Broadway en það er alveg fastur liður einu sinni á ári þegar Norðfirðingar mæta í borgina með rokkveisluna sína. Veit samt ekki alveg hvernig mér líst á þemað í ár en skítt með það.
Einhverjir ætla að hittast á Mánagötunni í kring um klukkan nítján annað kvöld og hita upp fyrir kvöldið. Svo ef einhverja vantar félagsskap fyrir ballið eru þeir velkomnir þangað.
* * *
Mig langar í ís. Er að hugsa um að heimsækja Júlla í Drauminn og athuga hvort hann eigi ekki Hnetutopp.