Út troðin

Vorum að koma af árlegum nýársfagnaði Orkuveitunar. Þar voru góðar snittur og sérlega góð risarækja. Ég át mér nánast til óbóta. Það er því greinilegt að nýjar stofumublur eru ekki nóg til að gera mig dannaða svo ég kunni mér hóf í svona veislum. Ég get þó huggað mig við að hafa ekki látið dólgslega né verið með nein fylleríslæti.

Geri svo ráð fyrir að kvöldinu verið eytt í að liggja á meltunni!

Comments are closed.