Steinunn tæknivæðist
Tengdaforeldrar mínir gáfu okkur digital-myndavél í jólagjöf. Ég hef aldrei kunnað á þannig myndavélar. Hef með herkjum getað smellt af þegar aðrir hafa gert allt klárt fyrir mig.
Frá því á jóladag hef ég æft mig og lært smá, get kveikt og slökkt á myndavélinni, tekið myndir og eytt þeim aftur. Í kvöld varð svo bylting þegar Palli kenndi mér að hlaða myndum inn í tölvuna og senda þær í tölvupósti.
Senn líður því að því að ég get sentAuði og fleirum myndir. Svona er ég nú að verða tæknivædd!!
* * *
Stefán hefur sannað að hann er algjör Völundur og hefur stofan á Mánagötunni nú fengið mjög menningarlegt yfirbragð. Ég bara finn það hvernig ég er orðin fágaðri og dannaðri manneskja!
January 7th, 2005 at 8:41 am
Vá - hvað gat Stefán smíðað svona fínt sem gerir þig að fágaðri manneskju?
January 7th, 2005 at 1:53 pm
Heyrðu, hann er búinn að skrúfa saman þessa líka fínu Billy hillusamstæðu og við búin að raða fullt af menningarlegum bókum í hillurnar. Þetta er til svo mikillar prýði að þú verður bara að fara að koma í heimsókn og skoða herlegheitin!!!
January 7th, 2005 at 3:28 pm
Já þetta gengur ekki lengur, nú förum við að birtast!