Fín grein

Það er fín grein eftir Einar Ólafsson, ritara Samtaka herstöðvaandstæðinga í Fréttablaðinu í dag. Ég hef að undanförnu einmitt verið að svekkja mig á því að sumir virðast ekki gera greinarmun á manngerðum hörmungum og náttúrhamförum.

* * *

Fór upp í MS-heimili í hádeginu. Það bregst aldrei að þar sé góður matur á föstudögum!

* * *

Járnið sem ég er búin að vera að eta að undanförnu virðist vera farið að hafa einhver áhrif. Ég hef allavega mun meiri drift í mér til að koma allskonar hlutum í framkvæmd en ligg ekki bara í endalausri leti. Það er alltaf gaman þegar manni finnst maður vera fullur af orku og hugmyndum.

Comments are closed.