Áskorun tekið
Fyrir skömmu skoraði Jón Knútur á nokkra einstaklinga að gera topp 5 lista fyrir árið 2004. Eftir nokkra umhugsun hef ég ákveðið að taka áskoruninni og birti hér með lista yfir fimm helstu afrek mín á árinu sem senn er að renna sitt skeið.
1. Að særa Guðna Ágústsson í fámennum en góðmennum mótmælum fyrir framan alþingishúsið gegn stríðinu í Írak. Hin fleygu orð Þið eruð ekkert betra fólk en ég verða lengi í hávegum höfð. Úff hvað maðurinn hlýtur að hafa slæma samvisku.
2. Að halda því leyndu fyrir vinum og fjölskyldu í þrjá mánuði að ég væri ólétt með því að drekka vatn úr bjórdósum í partýum og vanda mig mikið við það að æla bara heima hjá mér og á þeim tímum sem engir gestir voru í heimsókn.
3. Þróa með mér minn eigin whisky-smekk. Eftir að hafa smakkað margan óþverra kom í ljós að Highland Park er eðal whisky. Nú þarf bara að fara í pílagrímsferð til fyrirheitnalandsins, Orkneyja.
4. Skipuleggja og halda norrænan MS-fund í samvinnu við ýmsa góða félaga.
5. Sauma gardínur fyrir svefnherbergisgluggann. Það tók á en hafðist á endanum.
January 1st, 2005 at 1:08 am
Thad er nokkud god leid til ad leyna olettu ad throa med ser whisky-smekk
Til hamingju med olettuna annars