Friður eða frygð?
Fyrr í kvöld var vetrarsólstöðublót Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíðinni. Þar var geithafri fórnað til sólarinnar (reyndar bara hálmgeithafri). Það var gaman en voða kalt.
Þarna heyrði ég þá kenningu að til forna hefðu menn ekki óskað hvor öðrum “árs og friðar” eins og margir gera nú heldur “árs og frygðar” enda frjósemin það sem mestu máli skipti.
Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi kannski að taka þetta upp. Held þó að eins og heimsmálunum er háttað í dag sé eins gott að leggja áherslu á friðinn og láta allt frjósemistal liggja á milli hluta.
December 21st, 2004 at 11:16 pm
Hverjar voru heimildirnar fyrir þessari athyglisverðu kenningu?
Því er raunar oft haldið fram að friður tengist því að frjá (þ.e. elska). En ár og friður tengjast líka ágætlega.
December 22nd, 2004 at 8:56 am
Jú mikið rétt, hvað söng ekki hann Pálmi hérna um árið: “Gleymum ekki að þakka fyrir gleði- og frygðarjól.”
December 22nd, 2004 at 9:49 pm
Það var reyndar bara Haukur nokkur Halldórsson sem lét þessi orð falla og það kæmi mér ekki á óvart ef kenningin væri smíðuð af honum sjálfum.