Af hörmungum

Ýmsar hörmungar dynja yfir heimsbyggðina með reglulegu millibili. Sumir myndu jafnvel segja að eilífar hörmungar eigi sér stað.

Samkvæmt þessari frétt Moggans er þó hætta á alveg nýrri tegund hörmunga en hann segir hættu á að “mannúðarhörmungar” ríðir yfir á Fílabeinsströndinni. Ekki vissi ég að það orð væri til og enn síður get ég áttað mig á hvað það í raun þýðir.

Voru það kannski “mannúðarhörmungar” að kennarar á Íslandi sáu sig til neydda að fara í verkfall vegna lágra launa?

Comments are closed.