Archive for December, 2004

Áskorun tekið

Friday, December 31st, 2004

Fyrir skömmu skoraði Jón Knútur á nokkra einstaklinga að gera topp 5 lista fyrir árið 2004. Eftir nokkra umhugsun hef ég ákveðið að taka áskoruninni og birti hér með lista yfir fimm helstu afrek mín á árinu sem senn er að renna sitt skeið.

1. Að særa Guðna Ágústsson í fámennum en góðmennum mótmælum fyrir framan alþingishúsið gegn stríðinu í Írak. Hin fleygu orð “Þið eruð ekkert betra fólk en ég” verða lengi í hávegum höfð. –Úff hvað maðurinn hlýtur að hafa slæma samvisku.

2. Að halda því leyndu fyrir vinum og fjölskyldu í þrjá mánuði að ég væri ólétt með því að drekka vatn úr bjórdósum í partýum og vanda mig mikið við það að æla bara heima hjá mér og á þeim tímum sem engir gestir voru í heimsókn.

3. Þróa með mér minn eigin whisky-smekk. Eftir að hafa smakkað margan óþverra kom í ljós að Highland Park er eðal whisky. Nú þarf bara að fara í pílagrímsferð til fyrirheitnalandsins, Orkneyja.

4. Skipuleggja og halda norrænan MS-fund í samvinnu við ýmsa góða félaga.

5. Sauma gardínur fyrir svefnherbergisgluggann. Það tók á en hafðist á endanum.

Jólafríið endalausa

Wednesday, December 29th, 2004

Ég fæ ekki betur séð en að nám í félagsvísindadeild hefjist ekki fyrr en 17. janúar. Þó svo að gott sé að vera í fríi og liggja uppi í rúmi með góða bók og slappa af finnst mér þetta nú full mikið af hinu góða.

Friður eða frygð?

Tuesday, December 21st, 2004

Fyrr í kvöld var vetrarsólstöðublót Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíðinni. Þar var geithafri fórnað til sólarinnar (reyndar bara hálmgeithafri). Það var gaman en voða kalt.

Þarna heyrði ég þá kenningu að til forna hefðu menn ekki óskað hvor öðrum “árs og friðar” eins og margir gera nú heldur “árs og frygðar” enda frjósemin það sem mestu máli skipti.

Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi kannski að taka þetta upp. Held þó að eins og heimsmálunum er háttað í dag sé eins gott að leggja áherslu á friðinn og láta allt frjósemistal liggja á milli hluta.

Saumaskapur

Monday, December 20th, 2004

Af miklum myndarskap hefur mér, með leiðbeiningum frá móður minni, tekist að sauma gardínur fyrir svefherbergisgluggan. Gardínurnar voru settar upp núna áðan og eru til mikillar prýði. Gömlu ógeðslegu plastrimlagardínunum hefur verið hent.

Nú geta jólin sko komið á Mánagötunni!!

Tryggingastofnun sökkar

Thursday, December 16th, 2004

Merkileg frétt hér.

Ef þetta er allt í svona góðu lagi af hverju sáu þá um 11 þúsund manns sig knúna til að hringja í Þjónustumiðstöðina í leit að svörum? Mér finnst mun líklegri skýring á fáum kærum vera að fólk sé enn að reyna að botna í seðlinum sem það fékk með endurreikningunum og því að reyna að komast að niðurstöðu um það hvað er sem það í raun eigi að kæra.

Seðillinn er svo óljós að það þarf meirapróf í lögfræði til að átta sig á því hvað Tryggingastofnun í raun telur ofgreitt.

Ég get samt allavega stært mig að því að vera hluti af o.8 prósentunum sem eru búin að senda andmæli svo nú er eins gott að ágiskanir okkar Stebba á því hvað tryggjó telji ofgreitt til mín séu réttar.

Smá jólaviðleitni

Tuesday, December 14th, 2004

Jæja, þá er splunkuný jólasería komin í stofugluggann í nýmálaðri og huggulegri stofunni. Kannski fara gardínurnar líka upp og fyrir gluggann á morgun.

Svo er aldrei að vita nema að hin splunkunýja jólaserían verði komin í eldhúsgluggann fyrir jól. Það eru nú enn nokkrir dagar til stefnu.

Það er greinilega eitthvað athugavert við þetta persónuleikapróf

Monday, December 13th, 2004

chatterbox
Congratulations! You’re Mr. Chatterbox!

Það er kominn gestur

Tuesday, December 7th, 2004

Kara Swanson, bandarískur doktorsnemi er gestur á Mánagötunni í einn sólarhring. Um tilganginn með Íslandskomu hennar má lesa hér hér

Er eitthvað betra…

Monday, December 6th, 2004

…eftir annasaman dag en að leggjast í heitt bað með smákökur frá mömmu og bók?

Hugsanlega að skríða upp í rúm með mandarínu og bók. Ég ætla að fara og kanna málið.

Það er þessi árstími

Friday, December 3rd, 2004

Ég er að fá hausverk af því að brjóta heilan og reyna að koma saman ritgerð. Það er ekki gott að hugsa til þess að svona eiga allir dagar eftir að vera meira og minna til 17. desember.

Nonni hafði samband áðan en hann er víst í landi akkúrat núna. Með því að beita mig miklum sjálfsaga tókst mér að segja við hann að hann væri velkominn í kaffi um fimm leytið.

Síðan er liðinn einn klukkutími ég búin að skrifa rúmlega 200 orð. Ef ég held mér við efnið næ ég kannski að skrifa önnur 200 áður en hann kemur.

úff