Górillur
Horfði í gær á myndina Gorillas in the Mist, svona fyrst hún var sýnd á Skjá 1. En mig hefur langað að sjá þessa mynd í ansi mörg ár. Ég verð að viðurkenna að mér fannst hún ekki eins frábær og ég hafði einhvernvegin gert ráð fyrir. En svona er þetta stundum þegar maður byggir upp eftirvæntingu í mörg ár án þess að drullast bara til að sjá myndina.
Svo verð ég líka að viðurkenna að eftir því sem á leið hætti ég að undrast það jafn mikið að Diane Fossey hafði verið drepin vegna þessarar baráttu sinnar. Auðvitað átti hún það ekki skilið að deyja, frekar en nokkur á það nokkurntíma skilið, en hún var nú orðin svolítið klikk í lokin.
December 1st, 2004 at 12:16 am
Ég mæli með bókinni. Þar skrifar ekki klikkuð kona. Öðru nær, það er eitthvað klikk við þá sem útrýma fágætum dýrategundum í myrkviðum Afríku handa nýríkum Vesturlandabúum af fullkomnu samviskuleysi.