Hverskonar heimur er þetta?
Nú les maður að Rússar séu að þróa nýja gerð kjarnaflauga og að þetta sé allt voða merkilegt og mikil nýjung og að Íranir ætli líka að fara að smíða sér sprengju. Var ekki skrifað undir samning hérna um árið um að draga úr kjarnaflaugum?
Svo er allt í steik í Írak. Mogginn segir að semja eigi við íbúa Falujah. Ætli það séu ekki sömu íbúarnir og hann sagði í gær eða fyrradag að væri löngu farnir og því náttúrulega ekki hætta á að þeir yrðu drepnir.
Þetta er ömurlegt.
Við getum þó allavega huggað okkur við að vegna sérákvæðisins um Ísland í Kyoto bókuninni eigum við inni fullt af kvóta til að menga meira og við getum því dundað okkur við það meðan aðrir smíða vopn eða drepa fyrir okkur.
November 17th, 2004 at 3:45 pm
Já, it’s a wonderful world eins og Joey Ramone söng um árið. Úff…
November 23rd, 2004 at 6:03 pm
Ættum við að fara að horfa á Fallujah myndina á morgun?
November 23rd, 2004 at 6:04 pm
Ættum við að fara að horfa á Fallujah myndina á morgun?
November 26th, 2004 at 10:33 am
Prósak elskan mín. Prósak er svarið.