Stuð stuð stuð

Síðustu dagar hafa verið verulega annasamir. Mér sýnist þó að mér sé að takast að sigla ágætlega í gegnum þetta allt og að mér takist að koma öllum verkefnum af mér á réttum tíma.

Á morgun er svo jafnvel stefnt á óvissuferð í Kringluna ásamt Lonni Björgu og hjólastólnum hennar.

Frá því verður sagt að ævintýrinu loknu.

Um helgina ætla ég svo að verðlauna sjálfa mig fyrir vel unnin störf með því að lesa nýjasta Rebusinn sem Erna var svo vinsamleg að lána mér og skreppa í eitt barnaafmæli.

One Response to “Stuð stuð stuð”

  1. Hjólastólaeigandinn Says:

    Það var nú soldið gaman að vera dræverinn svona einu sinni;o)