Apar
Er það ekki dæmigert að ferðamenn séu farnir að lenda í vandræðum nálægt gosstöðvunum í Grímsvörnum?
* * *
Ég svaf á mínu græna eyra meðan Stefán fylgdist með talningu atkvæða í kosningunum í Bandaríkjunum. Ég sé núna að ég hef eytt tíma mínum á skynsamlegan hátt enda hefði ég bara orðið fúl og pirruð hefði ég fylgst með þessu. Nógu er ég fúl núna þegar úrslitin liggja fyrir.
November 4th, 2004 at 12:41 pm
Sammála með forsetakosningarnar. Held líka að Kaninn verði að fara að taka kosningakerfið til alvarlegrar endurskoðunar.
November 4th, 2004 at 1:16 pm
Það er umhugsunarvert að stór hluti fólks í Bandaríkjunum telur sig kjósa Bush af “siðferðilegum” ástæðum. Sem snúa aðallega að því að taka mannréttindi af fólki eins og t.d. samkynhneigðum en hafa ekkert með það að gera hvort stríðið í Írak sé siðferðilega verjandi. Það er erfitt að skilja slíkan hugsunarhátt.