Leitað langt yfir skammt
Wednesday, October 6th, 2004Í dag þurfti ég að fjárfesta í kasettu. Bara svona venjulegri kasettu eins og maður tók einusinni lög úr útvarpinu uppá. Ég ákvað því að að skella mér í tíu-ellefu og sameina kasettukaupaferðina öðrum innkaupum.
Afgreiðslustúlkan í tíu-ellefu horfði hinsvegar bara á mig þegar ég spurði hvort þar væru seldar kasettur og svaraði að svo væri ekki. Greinilegt var að það koma ekki margir í mánuði og spyrja svona undarlegra spurninga.
Ég taldi nokkuð örugt að ég gæti fengið kasettu í Sífunni en hafði bara ekki tíma til að fara þangað svo ég ákvað að setja traust mitt á Júlla í Draumnum. Og auðvitað var hægt að kaupa kasettur í Draumnum. Bæði 60 og 90 mínútna.
Í rauninni gerist það mjög sjaldan að Júlli eigi ekki þá vöru sem maður biður um. Héðan í frá ætla ég því að hefja innkaupaleiðangra mína í Draumnum.