Vantar kjölfestu
Mér hefur ekki fundist rokið síðustu daga neitt sérlega skemmtilegt. Nokkrum sinnum hef ég verið nálægt því að fjúka og það er ekki skemmtileg lífsreynsla. Er í nokkurri alvöru að íhuga að seta múrstein í veskið mitt til að fá svolítið meiri kjölfestu.
Þar sem ég fauk um miðbæinn í morgun ákvað ég að fjúka í smá heimsókn til Jóhönnu á Borgarskjalasafnið. Þar er illa farið með hana og hún er að drukna í vinnu. Ég lofaði að reyna að vera duglegri að rekast í heimsóknir á safnið. Vonandi kem ég til með að standa við það.
October 5th, 2004 at 8:29 pm
Ég lenti í svo rosalegri hviðu í gær að gleraugun fuku af mér! Sem betur fer fann ég þau aftur en það munaði engu að þau hyrfu út í veður og vind.
October 6th, 2004 at 12:28 am
Já veðurguðirnir eru svo sannarlega búnir að vera uppteknir við að blása undanfarið. En ég held að það yrði soldið erfitt að fara að burðast með múrstein í veskinu;)