Archive for October, 2004

Senn líður að aðalfundi MS-félagsins

Saturday, October 30th, 2004

Fátækur öryrki

Friday, October 29th, 2004

greiðsluseðinn frá Tryggingarstofnun var að berast inn um bréfalúgun. Samkvæmt honum ætlar Tryggingarstofnun að greiða mér 7.968 krónur þennan mánuðin. Þó svo að ég sé vön því að fá ekki feitar summur frá þeim fannst mér þetta nú heldur lítið og hringdi í þjónustumiðstöðina til að grenslast fyrir um það hvernig á þessu stæði.

Þar var mér sagt að þetta væri vitleysa í útreikningi sem stafaði af því að undanþáguákvæði, sem ég hef nýtt mér síðasta árið rennur út um þessi mánaðarmót.

Þannig er nefnilega að sem ótrúlega meðvitaður öryrki vissi ég að þegar ég skráði mig í sambúð gæti ég fengið árs undanþágu frá því að tekjur maka hefðu áhrif til lækkunar á bótum mínum frá Tryggingarstofnun. Að sjálfsöðgu nýtti ég mér þessi réttindi mín.

Núna, þegar komið var að því að tekjurnar hans Stebba færu að skerða greiðslurnar til mín, tókust útreikningarnir ekki betur en svo að allt var tekið af mer nema bensínstyrkurin. Mér er lofað að þessu verði kippt í liðinn strax eftir helgina.

Þá verður sko aldeilis gaman að lifa. Ég er ekki alveg viss um hversu mikið ég kem til með að fá útborgða en það er allavega ljóst að frá og með þessum mánaðarmótum verð ég verulega upp á Stefán komin með framfærslu.

Ótrúlega meðvitaður öryrki

Thursday, October 28th, 2004

Í gær fór ég á aðalfund Öryrkjabandalags Íslands. Það var skemmtileg upplifun. Það er alveg ótrúlegt hversu fjölbreytt starfssemi er á vegum ÖBÍ og hversu hrikalega mikla vinnu þetta félag er að inna af hendi.

Það er því kannski ekki að undra að aðalfundurinn tók ansi langan tíma, enda ekki lítið af skýrslum og reikningum sem þurfti að fara í gegnum og samþykkja. Svo þurfti náttúrulega að ræða allt hitt - þetta sem rætt er undir liðnum önnur mál.

Það er kannski til marks um það hversu vön ég er orðin skelfilegum þras aðalfundum að mér fannst helsti gallinn við þennan fund vera hversu harðir stólarnir á Grand Hótle eru. -En það segir nú kannski bara mest um rassinn á mér.

* * *

Þar sem Volvóinn er á verkstæði, og ég hef ekki þurft að fara milli flóknari staða en Háskólans og heimilis mín, eftirlét ég Stefáni að hafa minn bíl og er sjálf búin að vera strætóandi í dag.

Þar sem ég hafði heyrt að örorkulífeyrisþegar fengju ódýrara í strætó ákvað ég að kanna það og spara mér nokkrar krónur um leið. Ég mætti náttúrulega bara galvösk í vagninn og spurði bílstjórann hvort það væri ekki afsláttur gegn framvísium örorkukorts.

Bílstjórinn sagði mér að það væri ekki afsláttur af stökum fargjöldum en að ég gæti keypt mér örorkumerkta strætómiða á Hlemmi. Strætóferð tvö í dag byrjaði ég því á Hlemmi til að athuga með þetta. Þar voru þessi líka hræbillegu strætómiðar. Í sparnaðarskini keypti ég mér eitt kort. Svo nú verð ég að standa mig og vera dugleg að taka strætó.

Annars er ég ekkert allt of sátt við að vera alltaf að snapa mér afslátt sem öryrki. Ég vil náttúrulega bara að þeir sem af einhverjum ástæðum geta ekki unnið fyrir sér fái mannsæmandi greiðslur frá ríkinu og að öryrkjar geti borgað borgað sín gjöld fullu verði eins og annað fólk.

Málningarteymi að störfum

Sunday, October 24th, 2004

Málningarteymið, þ.e. Stefán og tengdapabbi, er aftur komið til starfa. Nú er varið að skrapa og pússa gluggakarma og grunna lista í kring um dyraop. Þeir standa sig með stakri prýði og með þessu áframhaldi verður íbúiðin orðin sallafín fyrir jól ;o)

Fullgild þjóð?

Saturday, October 23rd, 2004

Þá hafa fysrstu íslensku hermennirnir særst. Það hlaut að koma að þessu fyrr eða síðar. Æltli við teljumst núna fullgild þjóð eða þurfum við að bíða þar til fyrsti íslenski hermaðurinn kemur heim í svörtum poka?

Klikk

Friday, October 22nd, 2004

Ég held að maðurinn minn sé orðinn klikk. En það verður þá bara að hafa það - hann er samt ágætur.

Ég ætla bara að halda áfram að kalla manninn minn Stefán eða Stebba. Væri ekki lang flottast ef það nafn festist við þetta tákn?

Frændinn sloppinn af Mánagötunni

Tuesday, October 19th, 2004

Mætti seinnipartinn í dag ásamt Stefáni upp í MS-heimili til að hjálpa til við að líma nafna og heimilisfanga límmiða á aðalfundarboð. Það er alltaf gaman að taka svona vinnuskorpur, sérstaklega þegar það er nægur mannskapur á staðnum og hópnum tekst að rumpa verkinu af á stuttum tíma. Þannig var þetta einmitt í dag ;o)

Þegar við komum heim var Gummi frændi enn hjá okkur. Hann hafði aðallega eytt deginum í að skoða frestanir á flugi á textavarpinu. Skemmtileg og uppbyggileg iðja það. Það var svo loks um klukkan átta í kvöld að þar kom tilkynning um að nú yrði flogið austur. Ég er hreinlega ekki frá því að hann hafi bara orðið hálf feginn að losna frá okkur.

Veðurtepptur frændi

Monday, October 18th, 2004

Það er greinilega kominn vetur. Ekki nóg með að hér fyrir sunnan sé skítakuldi og smá snjór, heldur eru fyrstu ættmennin að austan farin að veðurteppast í borginni þennan veturinn.

Gummi frændi hringdi áðan og bar sig heldur aumlega. Hann var að koma frá Kaupmannahöfn og ætlaði bara beint austur. Það gekk þó ekki alveg upp og
deginum var hann búinn að eyða hangandi á Reykjavíkurflugvelli í von um að einhver smuga yrði á að senda eins og eina vél til Egilstaða.

Hann verður því í gestaherbeginu í nótt. Ætli hann eyði svo ekki bara morgundeginum aftur úti á flugvelli. Það verður væntanlega stuð!!

Mánagatan nettengd

Saturday, October 16th, 2004

Húrra!!!

Palli kom núna áðan og tengdi nýja fallega Makkann okkar við netið. Ó hvað ég sé fram á skemmtilegt kvöld. Stefán er að fara eitthvað út en ég ætla að byrgja mig upp með poppi og allskonar gúmmelaði og vafra um netið í allt kvöld, á milli þess sem ég glápi heiladauð á sjónvarpið. Ég held að þetta verði alveg fyrirtak.

Núna er ég sem sagt komin með nettengingu í fyrsta sinn síðan Bryndís flutti út.

* * *

Stefán og tengdapabbi máluðu í dag sameigninga niður að ganginum í kjallaranum. Þetta lítur ljómandi vel út hjá þeim og ég er ekki fjarri því að ég ráði þá bara í að flikka upp á alla íbúðina.

* * *

MS-félagið stóð í dag fyrir frábærum fræðslufundi um það sem nú er helst að gerast í lyfjamálum MS-sjúklinga. Sverrir Bergmann taugalæknir hélt erindi og var alveg hreint bráðskemmtilegur. Húsið smekkfylltist og fólk virtist bara vera í mjög góðum gír. Vonandi að þessi sami gír haldist næstu tvær vikurnar.

Tímamóta ákvörðun

Monday, October 11th, 2004

Um helgina tókum við þá tímamóta ákvörðun að hætta að leyta okkur að borðstofuborði, allavega í bili. Amma uglaði því nefninlega út ú sér að hún ætti hugsanlega eitt ef ekki tvö borð í geymslunni hjá mömmu. Í stað þess að flengjast milli húsgagnabúða og verða pirruð og þreytt erum við að byggja okkur upp í að gera atlögu við geymsluna.

Það verður þó erfitt, enda geymslan yfir sig full, aðallega af búslóð ömmu. En ég er þekkt fyrir að vera bjartsýn kona. Ég er því búin að ákveða að það að plægja sig í gegnum geymsluna verði hin skemmtilegasta iðja og ef okkur tekst að finna borð þarna getum við farið og keypt okkur fartölvu með góðri samvisku.

En útreikningar okkar sýna að fartölva og borðstofuborð og stólar séu álíka fjárfesting. Nú er bara spurning hvenær við komum okkur að verki.