Gæðastund
Í dag átti ég sérlega ánægjulegt hádegi en Bryndís tilkynnti mér um tólf leytið að ég ætlaði að borða hádegisverð með henni. Við fórum í bakaríið á Rauðarárstíg og keyptum okkur kókómjólk og rúnstykki. Það verður að segjast að þetta var gæðastund enda hittumst við ekki sérlega oft.
Auðvitað ætti maður að hitta vini sína oftar og borða með þeim og það er alveg í fínu lagi að það sé einfalt og ódýrt. Reyndar er það eiginlega bara betra.
* * *
Ég mun halda áfram að kalla hann lille laban enda finnst mér það vera sérlega viðkunnarlegt. Hver myndi annars kalla kærastann sinn uhyre? Það hlýtur hver maður að sjá að það bara gengur ekki.
September 23rd, 2004 at 11:24 am
Hvar er bakarí á Rauðarárstíg?
September 23rd, 2004 at 3:32 pm
Kaffi Roma alveg við Hlemminn er bakarí.
September 23rd, 2004 at 9:39 pm
Frábært. Gerir Norðurmýrina enn betri.
September 24th, 2004 at 10:34 am
Ekkert getur gert Norðurmýrina betri.