Ó mig auma
Í síðustu viku lét ég til leiðast og skipti um umræðutíma í eigindlegum rannsóknaraðferðum, þar sem allt of margir voru komnir í hópinn sem hittist á fimmtudögum kl 9:30. Ég skipti semsagt yfir í hópinn sem kemur saman kl. 8:15.
Nú er ég komin með hnút í magann yfir þessu. Hverjar eru líkurnar á því að ég verði búin að koma heilastarfseminni í gang á þessum fáránlega tíma sólarhringsins? Það hefur aldrei gengið sérlega vel hjá mér að mæta í tíma fyrir klukkan níu á morgnanna og ég hef enga trú á að það breytist á morgun.
* * *
Nú er til gata sem heitir Skaftahlíð. Hugsið ykkur hvað það væri gaman ef einhver önnur gata myndi heita Skaptahlíð.
September 16th, 2004 at 12:43 am
Enn gaman…ég er líka í eigindlegum rannsóknaraðferðum…en ég er einmitt í tímanum sem byrjar 9.30…leiðinlegt að þú skyldir missa af honum
September 16th, 2004 at 10:52 am
Maður ætti ekki að þurfa að fara á fætur fyrir hádegi.
September 16th, 2004 at 1:35 pm
Ég vil Skaptahlíð !!
September 16th, 2004 at 3:05 pm
Þú ert nú bráðum komin á þann aldur vinan að fara að vakna sjálfkrafa klukkan sex, verður bara að bíða í nokkra daga í viðbót
KV,Bryndís.