Mogginn með samsæri gegn mér
Á morgun verður fyrsti laugardagsfundur VGR á þessu hausti. (Suðurgötu 3, kl. 14:00). Það kom m.a. í minn hlut að skipuleggja fundinn og sjá um praktísk mál varðandi hann. Það gekk svosem allt vel. Á fundinum verður rætt um þær hræringar sem nú eru á lána- og húsnæðismarkaði.
Það skotgekk að finna tvo frummælendur, enda er Þorleifur samsarfsmaður minn í fundahaldi mikill snillingur. Svo var ákveðið að ég yrði bara fundarstjóri. Það er líka fínt þar sem ég þarf að æfa mig. Fundurinn er kannski ekki auglýstur svo víða en vökulir félagsmenn Í VG ættu þó að hafa tekið eftir tilkynningum þar sem fundurinn er auglýstur.
Svo birti reyndar Mogginn líka örstutta tilkynningu unna upp úr fréttatrikynningu frá okkur. Um það er náttúrulega ekki nema gott að segja en ég verð þó að viðurkenna að ég er svolítið móðguð yfir því að þar er samviskusamlega tekið fram hverjir frummælendur eru en ekki minnst einu orði á hinn merka fundarstjóra. Er þetta samsæri Moggans gegn mér?
September 3rd, 2004 at 11:06 pm
Já það er augljóst þetta er samsæri, ég skil tilfinningar þínar!
September 10th, 2004 at 5:08 pm
Hafðu engar áhyggjur. Það eru bara meðmæli að Mogginn skuli ekki minnast á þig! Hann skilgreinir þig greinilega sem hættulegasta andstæðing íhaldsins á þessum fundi (sem er allnokkuð!).