Archive for September, 2004

Gæðastund

Wednesday, September 22nd, 2004

Í dag átti ég sérlega ánægjulegt hádegi en Bryndís tilkynnti mér um tólf leytið að ég ætlaði að borða hádegisverð með henni. Við fórum í bakaríið á Rauðarárstíg og keyptum okkur kókómjólk og rúnstykki. Það verður að segjast að þetta var gæðastund enda hittumst við ekki sérlega oft.

Auðvitað ætti maður að hitta vini sína oftar og borða með þeim og það er alveg í fínu lagi að það sé einfalt og ódýrt. Reyndar er það eiginlega bara betra.

* * *

Ég mun halda áfram að kalla hann lille laban enda finnst mér það vera sérlega viðkunnarlegt. Hver myndi annars kalla kærastann sinn uhyre? Það hlýtur hver maður að sjá að það bara gengur ekki.

Morgunhænan ég

Thursday, September 16th, 2004

Það gekk mun betur að vakna í morgun en ég hafði nokkru sinni þorað að vona. Kannski er það aldurinn sem Bryndís skírskotaði til sem færðist yfir mig nokkrum dögum of snemma.

Líklegra er þó að það hafi virkað að fara að sofa fyrir allar aldir. Héðan í frá verður semsagt skriðið í bælið uppúr klukkan tíu á miðvikudagskvöldum.

Ó mig auma

Wednesday, September 15th, 2004

Í síðustu viku lét ég til leiðast og skipti um umræðutíma í eigindlegum rannsóknaraðferðum, þar sem allt of margir voru komnir í hópinn sem hittist á fimmtudögum kl 9:30. Ég skipti semsagt yfir í hópinn sem kemur saman kl. 8:15.

Nú er ég komin með hnút í magann yfir þessu. Hverjar eru líkurnar á því að ég verði búin að koma heilastarfseminni í gang á þessum fáránlega tíma sólarhringsins? Það hefur aldrei gengið sérlega vel hjá mér að mæta í tíma fyrir klukkan níu á morgnanna og ég hef enga trú á að það breytist á morgun.

* * *

Nú er til gata sem heitir Skaftahlíð. Hugsið ykkur hvað það væri gaman ef einhver önnur gata myndi heita Skaptahlíð.

Mogginn með samsæri gegn mér

Friday, September 3rd, 2004

Á morgun verður fyrsti laugardagsfundur VGR á þessu hausti. (Suðurgötu 3, kl. 14:00). Það kom m.a. í minn hlut að skipuleggja fundinn og sjá um praktísk mál varðandi hann. Það gekk svosem allt vel. Á fundinum verður rætt um þær hræringar sem nú eru á lána- og húsnæðismarkaði.

Það skotgekk að finna tvo frummælendur, enda er Þorleifur samsarfsmaður minn í fundahaldi mikill snillingur. Svo var ákveðið að ég yrði bara fundarstjóri. Það er líka fínt þar sem ég þarf að æfa mig. Fundurinn er kannski ekki auglýstur svo víða en vökulir félagsmenn Í VG ættu þó að hafa tekið eftir tilkynningum þar sem fundurinn er auglýstur.

Svo birti reyndar Mogginn líka örstutta tilkynningu unna upp úr fréttatrikynningu frá okkur. Um það er náttúrulega ekki nema gott að segja en ég verð þó að viðurkenna að ég er svolítið móðguð yfir því að þar er samviskusamlega tekið fram hverjir frummælendur eru en ekki minnst einu orði á hinn merka fundarstjóra. Er þetta samsæri Moggans gegn mér?

Fyrsti skóladagurinn

Wednesday, September 1st, 2004

Í dag er fyrsti skóladagur þessa vetrar. Ég mun hvorki fá mér nýja skólatösku né nýtt pennaveski í tilefni nýs skólaárs. Hinsvegar er ég að íhuga að fara í sturtu áður en ég mæti í tímann og hefja skólaárið hrein og strokin.

Í kvöld verður einnig upphaf ferils míns sem dönskukennara. En þannig er mál með vexti að ég hef tekið það að mér að hjálpa tíundubekkjarstúlku að koma dönskunni í aðeins betra horf fyrir samræmduprófin í vor.

Ég hef tröllatrú á því að erlend tungumál sé gott að læra með því að lesa teiknimyndasögur á því tundumáli sem læra skal. Og því hef ég tekið til stóran bunka af skrípó á dönsku sem téður tíundibekkingur mun þurfa að plægja sig í gegnum á komandi vikum.