Gestkvæmt á Mánagötunni
Síðustu daga hefur orðið bloggfall vegna eindæma blíðviðris og fádæma tiltekta.
Þannig er nefninlega að pabbi minn, Helga og Magnea eru komin í heimsókn. Þau komu í gær en fara svo á morgun til Portúgal. Nánar verður fjallað um utanlandsför þeirra síðar.
Pabbi lætur ekki oft sjá sig í höfuðborginni. Það er helst í kring um sjávarútvegssýningar sem hann stoppar hér í nokkra daga. Semsagt á u.þ.b. þriggja ára fresti.
Það dugði því ekkert minna en að taka almenilega til í gestaherberginu. Bjartsýnisraddirnar í höfðinu á mér segja mér að við náum að halda herberginu fínu fram að jólum. Raunsæisraddirnar segja hinsvegar að við munum þurfa að taka aftur til áður enn pabbi og co. koma aftur heim eftir þrjár vikur.
Nú ætti ég hinsvegar að fara og bjóðast til að skutlast með þau um bæinn. Pabba er nefninlega meinilla við að keyra í Reykjavík og ég verð að viðurkenna að ég er því dauðfegin.