Neistaflug og stífir hálsar
Það var bara fínt að skella sér austur á Neistaflug. Ég verð þó að viðurkenna að mín vegna hefðu alveg mátt vera færri á Papaballi á laugardeginum. Stemmingin í Egilsbúð minnti mig einum of mikið á síldartunnu.
Á föstudagsballinu var hinsvegar nóg pláss og maður frétt daginn eftir að þegar leið á nóttina hafi meira að segja orðið fremur einmanalegt. Það segir manni bara að Mannakorn rokka ekki.
Við nenntum hinsvegar enganvegin á Stuðmannaball á sunnudagskvöldinu. Fórum þess í stað á Rauða Torgið í pollagalla og gönguskóm og sátum þar fram eftir nóttu og ræddum um lífið og tilveruna við Sigurð nokkurn Jónsson, afabróðir minn.
Síðan við komum aftur heim hef ég setið og afritað viðtöl fyrir Kristínu Loftsdóttur. Af því hef ég fengið heiftarlega vöðvabólgu og auman háls og herðar. Það skyldi þó aldrei fara svo að einhver verði skikkaður í að nudda einhvern í kvöld?!
August 6th, 2004 at 4:41 pm
hvað sagði Siggi frændi gott?
ég bíð mig fram í nudd. Þú mátt líka endilega kíkja í heimsókn á Leifsgötuna!