Archive for August, 2004

Táfýla

Tuesday, August 31st, 2004

Í Þjóðarbókhlöðunni er táfýla.

Það er því greinilegt að þar þyrfti að lofta svolítið út.

Óvæntur gestur

Monday, August 30th, 2004

Okkur til mikillrar ánægju byrtist Stefán nokkur Jónsson öllum að óvörum á stofnfundi UVGR síðastliðinn laugardag. Urðu þar miklir fagnaðarfundir þar sem kappinn hefur verið búsettur í Berlín síðust misserin og við því ekki séð hann lengi.

Ekki var um annað að ræða en að bjóða Stefáni í mat. Að borðhaldi loknu spunnust einar þær al tæknilegustu og flóknustu umræður sem ég hef orðið vitni að, um vísindaheimspekileg málefni. Þakkaði ég mínu sæla fyrir kúrsinn hjá Skúla Sigurðsyni síðasta vor. Án hans hefði ég ekki skilið bofs.

Stefán ætlar að stoppa á Íslandi í nokkrar vikur. Það eru því allar líkur á því að matarboðin eigi eftir að verða fleiri. Heilafrumurnar eiga því líklega eftir að fá að reyna aftur á sig á næstunni.

Spennandi tónleikar í aðsigi?

Thursday, August 26th, 2004

Pönkhljómsveitin Tony Blair er greinilega í góðum gír. Það er gott.

Spennandi verður að sjá hvort Cherie Blair, lögfræðingur og forsetafrú sem væntanleg er til landsins, þyggji boð hljómsveitarinnar og mæti á tónleika.

Heimili

Tuesday, August 24th, 2004

Við hjónaleysin höfum nú eignast okkar eigið heimili. Í gær tókst loks að koma síðustu pappírum rétt til skila og þar með voru allir nauðsynlegir stimplar komnir og allt þetta sem þarf til að verða eigandi eins stykkis íbúðar. Næsta skref verður að ganga frá afsalinu þegar (og ef) pabbi kemur heim frá Portúgal.

Gestkvæmt á Mánagötunni

Monday, August 16th, 2004

Síðustu daga hefur orðið bloggfall vegna eindæma blíðviðris og fádæma tiltekta.

Þannig er nefninlega að pabbi minn, Helga og Magnea eru komin í heimsókn. Þau komu í gær en fara svo á morgun til Portúgal. Nánar verður fjallað um utanlandsför þeirra síðar.

Pabbi lætur ekki oft sjá sig í höfuðborginni. Það er helst í kring um sjávarútvegssýningar sem hann stoppar hér í nokkra daga. Semsagt á u.þ.b. þriggja ára fresti.

Það dugði því ekkert minna en að taka almenilega til í gestaherberginu. Bjartsýnisraddirnar í höfðinu á mér segja mér að við náum að halda herberginu fínu fram að jólum. Raunsæisraddirnar segja hinsvegar að við munum þurfa að taka aftur til áður enn pabbi og co. koma aftur heim eftir þrjár vikur.

Nú ætti ég hinsvegar að fara og bjóðast til að skutlast með þau um bæinn. Pabba er nefninlega meinilla við að keyra í Reykjavík og ég verð að viðurkenna að ég er því dauðfegin.

Árrisul í hitanum

Wednesday, August 11th, 2004

Það er allt of heitt til að sofa!!

Í stað þess að hanga heima og gera ekki neitt ákvað ég að skella mér í bókhlöðuna og kíkja á nokkra praktíska hluti fyrir komandi skólavetur.

Á eftir skal farið í sund og sólbað. Vill einhver koma með mér í sund?

Kertafleyting í kvöld

Monday, August 9th, 2004

Stebbi er að fara að horfa á fótbolta svo ég verð ein í matarhugleiðingum í kvöld. Er alvarlega að hugsa um að fara í 10 - 11 og leita að einhverju tilbúnu sem þarf í mestalagi að stinga í örbylgjuofn og reyna svo að finna mér eitthvað til dundurs fram eftir kvöldi.

Kertafleytingin verður nefninlegaá tjörninni í kvöld. Fréttatilkynningin er svohljóðandi:

Íslenskar friðarhreyfingar standa að kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn mánudaginn 9.ágúst næstkomandi.
Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nakasaki og lögð er áhersla á kröfuna um friðsaman og kjarnorkuvopnalausan heim.

Safnast verður saman við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan 22:30 en þar verður stutt dagskrá. Ávarp flytur Eygló Jónsdóttir frá friðarhópi búddista. Fundarstjóri er Sigþrúður Gunnarsdóttir íslenskufræðingur.

Þetta er í 20.skipti sem kertum er fleytt á Tjörninni af þessu tilefni en fyrsta kertafleytingin hér á landi var árið 1985. Þá voru liðin 40 ár frá kjarnorkuárásunum og í tilefni þess komu tvö fórnarlömb þeirra (svonefndir hibakusas) hingað til lands í boði Samtaka herstöðvaandstæðinga.

Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum.

Á sama tíma verður einnig kertafleyting á Akureyri. Athöfnin verður við tjörnina fyrir framan Minjasafnið kl. 22.30 og er þetta í sjöunda skiptið sem slík kertafleyting er á Akureyri. Að þessu sinni mun Hermann Óskarsson lektor flytja ávarp og Þórdís Jónsdóttir framhaldsskólakennari lesa ljóð. Kerti verða seld á staðnum.

Samstarfshópur friðarhreyfinga:
Friðarhópur leikskólakennara.
Friðar og mannréttindahópur BSRB
Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna
Samtök herstöðvaandstæðinga
SGI á Íslandi (Friðarhópur búddista)

Ég ætla ekki að fara að svekkja sjálfa mig á því að fara að minnast á Fréttablaðið og klúður þeirra

Neistaflug og stífir hálsar

Friday, August 6th, 2004

Það var bara fínt að skella sér austur á Neistaflug. Ég verð þó að viðurkenna að mín vegna hefðu alveg mátt vera færri á Papaballi á laugardeginum. Stemmingin í Egilsbúð minnti mig einum of mikið á síldartunnu.

Á föstudagsballinu var hinsvegar nóg pláss og maður frétt daginn eftir að þegar leið á nóttina hafi meira að segja orðið fremur einmanalegt. Það segir manni bara að Mannakorn rokka ekki.

Við nenntum hinsvegar enganvegin á Stuðmannaball á sunnudagskvöldinu. Fórum þess í stað á Rauða Torgið í pollagalla og gönguskóm og sátum þar fram eftir nóttu og ræddum um lífið og tilveruna við Sigurð nokkurn Jónsson, afabróðir minn.

Síðan við komum aftur heim hef ég setið og afritað viðtöl fyrir Kristínu Loftsdóttur. Af því hef ég fengið heiftarlega vöðvabólgu og auman háls og herðar. Það skyldi þó aldrei fara svo að einhver verði skikkaður í að nudda einhvern í kvöld?!