Hraðsoðin ferðasaga
Þá er ég komin heim úr fríi
Ferðin austur var vel lukkuð í alla staði. Þar sem við vorum á ofur-jeppa tengdaforeldra minna skelltum við okkur í eina litla fjallaferð og keyðrum yfir Oddskarð. Það er alltaf gaman að koma þangað upp.Jóhanna , Valdimar og Helgi Gnýr fóru með. Að sjálfsögðu var farið í sjoppuna áður en haldið var á fjallið og keypt sælgæti. Piparmintusúkkulaðið bráðnaði þó ekki í þetta skipti.
Við skoðuðum einnig nýja barinn í bænum, Rauða Torgið. Hittum þar Jónu, Sigga og Jón Knút, blaðamann og laxaslátara með meiru. Þetta er sallafínn staður en ég er hrædd um að reksturinn gæti orðið svolítið erfiður þar sem hann er reyklaus. Ég mæli með því við alla sem leið eiga um Neskaupstað að gefa barnum í Egilsbúð frí og taka Rauða Torgið út.
Á heimleiðinni keyrðum við Norðurleiðina. Jökuldalurinn er nú orðinn að draumi hvers ökumann, jafn leiðinlegur og hann alltaf var hér áðurfyrr. Við gerðum nætturstans á Hólum og heimsóttum Bryndísi og Guðnýu. Rákumst einnig á Kolbrá sem hékk á netinu í sjoppunni.
Í dag og næstu tvo daga verður ekkert ferðast. Hinsvegar skal unnið svolítið og jafnvel að ég reyni að koma mér fyrir á þriðju hæðinni í Odda. Svo verður aftur haldið austur á land enda hef ég tröllatrú á því að stuðið um Verslunnarmannahelgina verði á Neistaflugi. Nú ef ekki má alltaf liggja uppi í rúmi með góða bók og láta pabba stjana við sig.