Feitir mótmælendur
Í hádeginu mætti ég á mótmæli gegn því að ríkisstjórnin kæmi í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þar var mun fleira fólk en ég hafði átt von á.
Mogginn og útvarpið telja að þar hafi a.m.k. 1000 manns verið samankomnir. Ég tel hinsvegar að þar hafi a.m.k. 4000 manns verið.
Það skyldi þó aldrei vera að þessir mótmælendur séu feitari en gengur og gerist með Íslendinga og rúmist því illa á torgum líkt of friðarsinnar?
July 8th, 2004 at 7:23 pm
Það eru því miður töluvert miklar líkur á að stór hluti fólksins á mótmælunum hafi verið mjög feitt þar sem að stór hluti Íslendingar er yfir meðalþyngd.
July 8th, 2004 at 8:14 pm
já hvurslags er þetta… á ekki að mótmæla því sem Davíð var að segja um stríðið í fréttunum í gær?
maður heyrir alltaf annað slagið um mótmælendur sem eru að svelta sig.. Þeir geta ekki verið ýkja feitir en þeir teljast kannski ekki með. Eða að allir hinir bæti þetta upp.
July 8th, 2004 at 8:15 pm
eða eru þeir kannski ekki með í hópi mótmælendanna, og eru í sér hópi sem heita friðarsinnar sem þú varst að tala um… eða hvað? hehe
July 8th, 2004 at 10:32 pm
Auðvitað teljast þeir sem svelta sig ekki með því þeir eru of veikburða af næringarskorti og algjöru orkuleysi að þeir geta ekki mætt á mótmæli. Fátt þykir mér heimskulegra en að svelta sig.