Fri fram yfir helgi
Wednesday, July 28th, 2004I fyrramalið held eg austur a land. Her verður ekkert skrifað fyrr en eftir verslunarmannahelgi!!!
I fyrramalið held eg austur a land. Her verður ekkert skrifað fyrr en eftir verslunarmannahelgi!!!
Við Nonni skelltum okkur núna áðan í heimsókn til nýbökuðu foreldranna á Sundlaugarveginum. Þau eiga myndar stúlku sem tekur nú við af Gnýnum sem nýjasti meðlimur vinahópsins.
Það efaði það líklega enginn að Salný yrði fyrirmyndarmamma en ég verð að viðurkenna að ég sá Aðalstein síður fyrir mér í föðurhlutverkinu. Honum fer það hinsvegar ljómandi vel.
Ég óska þeim hér með til hamingju!!
Þá er ég komin heim úr fríi
Ferðin austur var vel lukkuð í alla staði. Þar sem við vorum á ofur-jeppa tengdaforeldra minna skelltum við okkur í eina litla fjallaferð og keyðrum yfir Oddskarð. Það er alltaf gaman að koma þangað upp.Jóhanna , Valdimar og Helgi Gnýr fóru með. Að sjálfsögðu var farið í sjoppuna áður en haldið var á fjallið og keypt sælgæti. Piparmintusúkkulaðið bráðnaði þó ekki í þetta skipti.
Við skoðuðum einnig nýja barinn í bænum, Rauða Torgið. Hittum þar Jónu, Sigga og Jón Knút, blaðamann og laxaslátara með meiru. Þetta er sallafínn staður en ég er hrædd um að reksturinn gæti orðið svolítið erfiður þar sem hann er reyklaus. Ég mæli með því við alla sem leið eiga um Neskaupstað að gefa barnum í Egilsbúð frí og taka Rauða Torgið út.
Á heimleiðinni keyrðum við Norðurleiðina. Jökuldalurinn er nú orðinn að draumi hvers ökumann, jafn leiðinlegur og hann alltaf var hér áðurfyrr. Við gerðum nætturstans á Hólum og heimsóttum Bryndísi og Guðnýu. Rákumst einnig á Kolbrá sem hékk á netinu í sjoppunni.
Í dag og næstu tvo daga verður ekkert ferðast. Hinsvegar skal unnið svolítið og jafnvel að ég reyni að koma mér fyrir á þriðju hæðinni í Odda. Svo verður aftur haldið austur á land enda hef ég tröllatrú á því að stuðið um Verslunnarmannahelgina verði á Neistaflugi. Nú ef ekki má alltaf liggja uppi í rúmi með góða bók og láta pabba stjana við sig.
Miðvikudaginn 14. juli kl. 20:00 heldur NYMS kaffihusafund a Cafe Milano (Faxafeni 11). Allir þeir sem greinst hafa með MS en aldrei tekið þatt i neinu starfi með öðru MS-folki er hvatt til að mæta. Við erum nefninlega alveg hrikalega skemmtileg ;o)
Tekið skal fram að aðgegni að kaffihusinu er með þvi betra sem gerist i Reykavik og þvi bæði hægt að komast inn a staðinn og fara a klosettið (aukabosnu sem margir skemmtistaðir bæjarinns gera ekki rað fyrir)
Jæja, þá er fletti mínu lokið. Við tekur iðjuleysi og sumarfrí.
Þótt ótrúlegt sé er mér ekki jafn illa við þjóðarbókhlöðuna nú og áður en Mogga-lesturinn hófst.
Svona er Mogginn sljóvgandi
Í kvöld verður haldið í innfluttningspartý til Hrannar og Svenna en þau eru sem sagt búin að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð. Er þeim hér með óskað opinberlega til hamingju með það.
Núna er planið hinsvegar að halda út í sólina enda búið að fletta í gegnum marga Mogga í dag og jafnvel farið að bera á smá vöðvabólgu í annari öxlinni. Annars er aðeins nokkurra klukkutíma fletti ólokið og því viðbúið að um hádegisbil á mánudag verði ég aftur orðin að iðjuleysingja.
Síðar í dag er einnig palnað að ræða við Þóreyju nokkra Pétursdóttir. Örstutt símaviðtal við hana sem birtist í því merka blaði Austurglugganum vakti upp forvitni mína.
Jamm og já
Í hádeginu mætti ég á mótmæli gegn því að ríkisstjórnin kæmi í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þar var mun fleira fólk en ég hafði átt von á.
Mogginn og útvarpið telja að þar hafi a.m.k. 1000 manns verið samankomnir. Ég tel hinsvegar að þar hafi a.m.k. 4000 manns verið.
Það skyldi þó aldrei vera að þessir mótmælendur séu feitari en gengur og gerist með Íslendinga og rúmist því illa á torgum líkt of friðarsinnar?
Hún Jóhanna , húsmóðir í Vesturbænum og skjalavörður með meiru er byrjuð að blogga.
Það er eins gott að hún standi sig núna þegar ég er búin að auglýsa tilvist hennar á minni bráðskemmtilegu og vinsælu síðu!!!
Það var rosalegt á tónleikunum í gærvöldi. Mér er enn heitt. Var þó líklega á kaldasta stað í húsinu.
Metallica rúlar. Mér brá þó töluvert þegar ég heyrði James Hetfield tala. Þvílíkur kani.
Töskugeymslur sökka hinsvegar
Samt var ég heppin. Var ekki nema 40 mín í röðinni.
Ég hafði ekki áttað mig á því að konseptið með Bakþanka Fréttablaðsins væri stolið. Því fannst mér sérlega skemmtilegt þegar ég uppgötvaði að 1988 og 1989 (er ekki komin lengra í fletti mínu) birtust Bakþankar á baksíðu C blaðs Sunnudags Moggans.
Hefði ekki allavega verið hægt að skipta um nafn á þönkunum?