Þrælfínt matarboð
Helgin var að mestu róleg. Undantekningin var þrælfínt matarboð hjá Ernu, en hún hafði boðið okkur ásamt Kötu Jakobs í mat. Það vottast hér með að Erna er snilldar kokkur.
Við reyndum aðeins að fylgjast með kosningasjónvarpinu milli rétta, ef kosningasjónvarp skyldi kalla. Eiginlega finnst mér þetta bara hafa verið sjónvarpinu til skammar. Hvaða skýringargildi hefur t.a.m. mynd af íþróttahúsi á Akureyri í forsetakosningum? Ef einhver getur komið með gáfulegt svar heiti ég verðlaunum.