Er eitthvað í bíó?

Ég var að fatta að ég hef ekki farið í bíó í marga mánuði. Það er svo langt síðan að ég get ómögulega munað hvað það var sem ég síðast sá. Einhverntíma fórum við þó á Finding Nemo. Hugsanlega var það bara síðasta mynd sem við sáum.

Núna langar mig hinsvegar skyndilega í bíó. Er verið að sýna eitthvað sem er þess virði að sjá?

5 Responses to “Er eitthvað í bíó?”

  1. Sv1 Says:

    Mors Elling er held ég málið !

  2. Jóhanna Says:

    Sammála síðasta ræðumanni

  3. Steinunn Þóra Says:

    Jamm, það gæti bara alveg verið málið. Nú verður málið sett í nefnd.

  4. Erna E. Says:

    Harry Potter. Fín mynd.

  5. lesandi Says:

    eternal sunshine of the spotless mind!

    Frábær mynd og falleg! kemur á óvart