Mér er ekki flisjað saman

Blogglægð síðustu daga skýrist af því að ég hef reynt að rumpa tilskildum vinnutímum af og snarast svo út í góðaverðið. Sá enga ástæðu til að hanga inni yfir tölvu. Í gær var reyndar ekkert sérlega gott veður en vegna smá breytinga á vinnufyrirkomulagi var ég engu að síður komin frekar snemma heim.

Ég verð bara að viðurkenna að ég einfaldlega hélt að þetta héti flisjuvél og ég get bara alls ekki séð að það sé neitt vitlausara orð en fisjuvél.

En ég er hætt að nota vélina í vinnunni. Bíð núna eftir því að fá sendingu góðum og gamaldags pappírsmogga úr geymslu bókasafnsins. Svo verður hafist handa við að fletta og ljósrita.

One Response to “Mér er ekki flisjað saman”

  1. pallih Says:

    Flisjuvél, ristavél, tryggingastærðfræðiskrúfuvél.