Komin með vinnu

Ég var að ráða mig í sumarvinnu. Mun eyða næstu dögum og vikum í Þjóðarbókhlöðunni við að skoða Moggan í flisju vél og leita að greinum um Afríku. Þetta verður líklega alveg bráðskemmtilegt. Þar sem góðar líkur eru á því að ég verði sjóveik við störf mín ætti ég að geta selt pabba þá hugmynd að þetta sé “alvöru” vinna.

Þeir sem eiga leið um þjóðarbókhlöðuna fyrir kl. 15 á virkum dögum mega frá og með mánudeginum gjarnan leita mig uppi og fá mig í kaffi með sér.

5 Responses to “Komin með vinnu”

  1. Jóhanna Says:

    Velkomin heim og til hamingju með vinnuna. Aldrei að vita nema maður kíki í heimsókn þegar sumarfríið byrjar. Er þetta viljandi mismæli hjá þér. Reyndar er Flisjuvél miklu betra orð en fisjuvél þannig að þú mátt garnan reyna að breyða þetta út. Er kannski y?

  2. Bryndis Says:

    Heyrdu nu mig att thu ekki ad vera vinna vinan en ekki hanga i kaffi allan daginn!!! Eg mun thvi midur ekki koma thar sem akvedid hefur verid ad senda mig med tjald ut a land til ad vinna, Kvedja fra Trieste, Bryndis.

  3. Lonni Björg Says:

    Er einhver blogglægð hjá kellu eða hmmm?

  4. Sverrir Says:

    Að vera í flisjuvél er amk. betra en að fisja kartöflur.

  5. Jóhanna Says:

    Ég hebbði haldið að þú ættir að vera extra dugleg að blogga verandi í vinnu á bókasafninu þar sem auðvelt er að komast í tölvu…hmmm…