Merkilegar matarvenjur
Skotlandsferðin var alveg frábær og Skotar voru almennt hið besta og skemmtilegasta fólk. Ég verð þó að viðurkenna að matarvenjur þeirra fundust mér fremur skrítnar. Franskar kartöflur með öllu og í öll mál.
Fyrir ferðina hafði ég ákveðið að fá mér fish and chipps á einhverri búllu. Þvílíkt ógeð. Reyndar er það merkilegt hvernig jafn bragðlaus matur getur verið svona ógeðslegur.
Eitt atvik er snertir mataræði þeirra Skota gekk þó sérstaklega fram af mér. Við fórum á afbragðsgóðan sjávarrétta veitingastað sem rekin er af kræklingabændum og pöntuðum okkur krækling og hvítvín með. Alveg frábær máltíð. Fólkið á næsta borði var einnig að borða krækling og drekka hvítvín en með matnum sínum borðaði það einnig franskar kartöflur. Slíkt gerir maður bara ekki.
June 18th, 2004 at 2:09 pm
Það er nú þetta með frönsku kartöflurnar, þjóir eins og Belgar og Hollendingar borða mikið af kræklingi og alltaf með frönskum þeir bara borða ekki krækling án þess að hafa franskar með. Jafnvel þegar farið er með fólk frá þessum löndum á kræklingafjöru á íslandi þá þarf að að hafa franskar með þegar kræklingur er borðaður meira að segja í eldhúsinu hjá mér.
June 18th, 2004 at 4:56 pm
Skrýtið að allir borða franskar, nema Frakkar?