Það er púkó að vera kaffínfíkill með appelsínubörk
Tuesday, June 29th, 2004Eitt það merkilegasta við að fletta í gegnum Moggan frá ofanverðum 9. áratugnum er að sjá hvað tungutak og orðaval manna hefur náð að breytast mikið. T.d. rakst ég á innsent bréf frá árinu 1986 þar sem tvær stelpur kvörtuðu yfir því hversu púkó útsetningin á Gleðibankanum hefði verið í úrslitakeppninni.
Önnur grein sem ég rakst á fjallaði um algengt vandamál sem hrjáir konur. Var vandamálið kallað appelsínubörkur. Ég var smá stund að tengja.
Svo var grein um kaffidrykkju þar sem fólk var varað við því að neysla kaffíns í miklu mæli gæti verið skaðleg. Fyrst hélt ég að þetta væri prentvilla en sá svo að orðið kaffín kom nokkrum sinnum fyrir.
Merkilegt