Mjúkar tær fyrir sumarfríið

Í dag gef ég mér loks tíma til að fara í dekrið í Baðhúsinu sem Stefán gaf mér í jólagjöf. Enda ekki seinna vænna.

Nú er ég öll voða fín, með litaðar augabrúnir, snyrtar neglur og líklega mýkstu tær í heimi. Ég er svo afslöppuð og slök að ég nenni varla að hreyfa mig.

Held að þetta hljóti að teljast afbragðs byrjun á sumarfríi. E ég er semsagt farin í frí. Sjáumst síðar í sumar.

One Response to “Mjúkar tær fyrir sumarfríið”

  1. afi Says:

    Fátt er betra en að fara afslappaður og með mjúkar tær í orlofið. Hafið það gott í sumarfríinu.