Mig dreymdi ótrúlega svekkjandi draum í nótt!!

Samtök Herstöðvaandstæðinga voru loks búin að kaupa sér hús. Gallinn var bara sá að húsið var ömurlegt. Allskonar rangalar og tröppur sem leiddu inn í einhver skrítin herbergi.

Án þess að húsið væri rætt neitt frekar ákváðu Elvar og Sigurður Flosason að kaupa það og allir nema ég virtust í skýjunum. Ég reyndi hinsvegar að benda fólki á að nú hefði okkur orðið á mistök en enginn vildi hlusta.

Á endanum fór ég út í fússi og ráfaði í kringum húsið í ausandi rigningu. Öllum var þó sama um mig og í staðinn fyrir að koma út og sleikja úr mér fýluna voru allir bara inni að dást að nýja óskapnaðinum.

Ömurlegt!!!

7 Responses to “Mig dreymdi ótrúlega svekkjandi draum í nótt!!”

  1. Erna E. Says:

    Oj, bara, en ósanngjarnt. :(

  2. Gaston Says:

    Þessi draumur ræður sig nú bara sjálfur.

  3. Steinunn Þóra Says:

    Hvað meinarðu?

  4. Le gaston Says:

    Þetta fjallar að sjálfsögðu um tvennt: Efahyggjuna sem er innifalin í öllum heilbrigðum einstaklingum, en einnig um flokkunaráráttu mannsins, t.d. að skipta honum upp í kjarna og hismi (eða að gera það ekki).

    Sum sé, draumurinn gefur í skyn virka efahyggju um húsakaupin (kannski ertu hrædd um að verkefnið snúist þá um rekstur hússins og starfsemin útvatnist fyrir vikið). Það gerðist til dæmis hjá allþéttum samtökum sem voru stofnuð í Hafnarfirði, sem munu lenda í húsnæðisvandræðum, þ.e.a.s. smám saman fara þau að snúsat um allt sem er í kringum viðfangsefnið (t.d. rekstur húsnæisin), en ekki viðfangsefnið sjálft.

  5. Steinunn Þóra Says:

    Ég er ekki sammála þessari draumaráðningu þinni. Ég held að þetta snúist mun frekar um heimtufrekju mína á athyggli.

    Ég varð fúl af því MÉR fanst húsið asnalegt. ÉG var ekki spurð álits fyrir kaupin og enginn nennti að sleikja fýluna úr MÉR.

  6. Le gaston Says:

    Ó, sum sé bara venjulega stjórnunaráráttu og áhrifagirni?

  7. Steinunn Þóra Says:

    Jamm, fyrir utan það náttúrulega að húsið var fáránlegt :)