Archive for April, 2004

Af heimsóknum og öðrum atburðum

Tuesday, April 6th, 2004

Í gærkvöldi fórum við Stebbi og Jón og heimsóttum Jóhönnu og Helga Gný. Helgi er farinn að heilsa með handabandi og ég er alveg sérlega ánægð með það. Það er alveg greinilegt að þarna er veluppalinn ungur maður á ferð.

Svo drógum við Jón með okkur á barinn…

* * *

Höski og Úlla ætlað að ganga í hjónaband á laugardaginn. Betra er seint en aldrei er nú það eina sem hægt er að segja um það mál.

Lífið murkað úr Krumma

Friday, April 2nd, 2004

Í morgun murkaði einhver lífið úr Krumma einhverstaðar í Norðurmýrinni. Þvílík og önnur eins læti. Fuglinn krunkaði hástöfum í 20 mínútur. Ég komst samt aldrei að því hvar aumingjans fulglinn væri. Nokkrir nágrannar liggja undir grun vegna þessa máls.

* * *

Afbragðs afmæli hjá Sveini í gær. Ljúffengar veitingar og eiginlega alveg merkilegt hversu vel allir gestirnir rúmuðust á báðum fermetrunum sem þau hjónaleysin búa á.

* * *

Sonja er flutt. Ég er strax farin að sakna þess að hafa hana ekki í kjallararnum. Nýji nágraninn er þó hin vinalegasta.