Sitt lítið af hverju
Ætli þetta þýði að ég hafi uppgötvað þessa síðu mánuði of seint. Fúllt.
* * *
Fyrstu iðnaðarmennirnir komu í dag. Það verður áhugavert að sjá hvernig baðherbergið lítur út þegar ég kem heim. Ég get þó alltént huggað mig við það að það getur varla orðið verra en það var í morgun.
* * *
Er með ritstíflu. Það versta er að hún brýst aðeins fram þegar ég sit og er að reyna að skrifa eina tiltekna ritgerð. Núna áðan mætti ég illa lesin í próf en þó ég segi sjálf frá þá hreinleg rann mælskan upp úr mér um allskonar hluti sem ég veit svo sem ekkert um. Það er ekki sanngjarnt.
* * *
Ætti maður kannski að skella sér í vesturbæjarlaugina í kvöldsólinni?
Smulf
April 27th, 2004 at 9:23 am
hvad thydir Smulf?