Framkvæmdir byrjaðar
Í þessum skrifuðu orðum er ég að undirbúa mig andlega fyrir heimferðina. Mér skilst að það standi ekki steinn yfir steini í baðherberginu okkar og búið sé að rífa allt niður nema klósettið sjálft, vaskinn og sturtuna.
Geri annars ráð fyrir að kvöldinu verði varið í að gera barmmerki fyrir þá femínistadrengi. Átakið þeirra Karlmenn segja nei við nauðgunum er alveg frábært framtak og tímanum því vel varið í að leggja baráttunni lið.
Ætli maður endi ekki bara með að kíkja í ríkið á föstudaginn…