Stóra gólfflísamálið
Ég held að við séum komin að niðurstöðu í stóra gólfflísamálinu. Allir sem eitthvað “vit” eiga að hafa á þessum málum mæla gegn mósaík á gólfið.
Sú þumalputtaregla gildir víst um gólf að því færri samskeyti og þ.a.l. minni fúga - því betra. Við erum því búin að finna okkur stærri gólsflísar í lit og munum nota kvöldið til að sjá hvernig okkur líkar við þær.
Og Nonni!! Ég hélt nú að þú hefðir notað baðherbergið nógu oft til að vita að það er ekkert niðurfall þar inni…enn þetta segir manni víst að þú hafur alltaf hitt í klósettið…humm.
April 20th, 2004 at 12:41 pm
…en það er auðvelt að koma fyrir niðurfalli…