í tilefni 1. maí
Friday, April 30th, 2004Í tilefni þess að á morgun er 1. maí ætla ég að hneykslast svolítið á fyrrverandi vinnuveitendum mínum í Síldarvinnslu Neskaupstaðar.
Þar hefur nú verið tekin í notkun svokölluð “blá pilla” sem gerir yfirmönnum kleift að fylgjast með öllum ferðum starfsmanna innan fyrirtækisins.
Með “pillunni” er t.d. mögulegt að fylgjast með því hversu löngum tíma starfsmenn verja á klósettinu í vinnutímanum.
Það eru þó ekki allir starfsmenn sem þurfa að bera þennan staðsetningarbúnað.
Skv. Austurglugganum eru það einungis með þeim sem starfa á tímakaupi sem þarf að fylgjast svona með. Yfirmenn á mánaðarkaupi eru hinsvegar “frjálsir ferða sinna”.
Það hlýtur að vera skelfilega erfitt fyrir rekstraraðila SVN að þurfa að horfast í augu við það að starfsemin gengur ekki upp nema að þeir reiði sig á lifandi vinnuafl, með sjálfstæða hugsun en ekki einungis tilfinningalausar vélar.
Svona lagað ætti náttúrulega ekki að líðast!!! Og hvað ætli gömlu kommarnir segðu ef þeir vissu af þessu?!?
* * *
Krílið hún litla systir mín er farin að blogga. Það er reyndar töluvert langt síðan hún byrjaði en blessunin var ekkert að segja mér frá því. Reyndar verður jafnframt að viðurkennast að ég spurði hana aldrei út í það.
