Fjölmennum á mótmælin fyrir framan stjórnarráðið á laugardaginn kl. 12:00
Laugardaginn 20. mars verður ár liðið frá því að árásarstríð
Bandaríkjamanna, Breta og bandalagsríkja þeirra hófst í Írak. Að því
tilefni efna friðarsinnar um víða veröld til aðgerða. Hér á landi verða
slíkar aðgerðir í Reykjavík og á Akureyri.
Í Reykjavík munu Samtök herstöðvaandstæðinga andæfa stríðsrekstrinum,
stuðningi íslenskra stjórnvalda og veru bandaríska hersins á Íslandi.
Aðgerðirnar verða fyrir framan stjórnarráðið og hefjast kl. 12:00.
Með stuðningi sínum við stríðið í Írak hugðist íslenska ríkisstjórnin
öðlast virðingu og viðurkenningu. Virðingin hefur látið á sér standa,
en kannski hlotnast þeim viðurkenningar á laugardaginn kemur. Þar munu
íslenskir friðarsinnar veita verðlaun í mörgum flokkum. Hver hlýtur
verðlaun fyrir svæsnustu lygina í aðdraganda stríðsins? Hver er
slyngasti stríðsæsingamaðurinn? Og hverjir reyndust staðföstustu
bandamenn Bush-stjórnarinnar?
Erlendir jafnt sem innlendir stjórnmálamenn koma til greina við
tilnefningar verðlaunanna. Enn hafa þó engir þjóðarleiðtogar staðfest
komu sína.
* * *
En nú er ég farin í próf. Mun efalítið rúlla því upp…