Eitt hvítt blóðkorn, tvö hvít blóðkorn…
Systir mín bauð mér með sér á leiksýningu Borgarholtsskóla “Ýkt kominn yfir þig” í gærkvöldi. Ég skemmti mér afbragðs vel. Síðan hef ég mikið verið að hugsa um það hversu sérstakur þjóðflokkur menntaskólanemar eru…
* * *
John vill víst fara að telja í mér hvítublóðkornin. Ætli ég gangi ekki í það í fyrramálið að láta tappa af mér blóði. John sagðist gera ráð fyrir að mér yrði boðið Sherry meðan á aftöppuninni stæði - mikið vildi ég að hann væri meinatæknir jafnhliða því að vera taugalæknir. Annars var hann bara sáttur við útlistingar mínar á MS í Mogganum. Þar með held ég að ég geti bara verið verulega sátt við þetta viðtal.
March 10th, 2004 at 1:15 pm
Þetta Sherrýtal minnir mig á ákvörðun ykkar Þóru um að heimsækja ákveðna konu og hjálpa henni að drekka vínið sem hún fékk í jólagjöf. Nú verðið þið að fara að drífa í því! Kannski ekki sniðugt samt að fara strax eftir blóðtöppunina.
March 10th, 2004 at 6:25 pm
Það er rétt. Við höfum trassað þetta of lengi.
Þóra! Hvernig er laugardagseftirmiddagurinn hjá þér?
March 10th, 2004 at 9:23 pm
Ég er einmitt að fara með gömlu fólki á árshátíð um kvöldið… svo heimsókn til Gömlu væri ágæt upphitun…
March 11th, 2004 at 2:53 pm
Þá held ég að við séum komnar með plan. Heyri í þér einhverntíma á næstunni.