Málþingið tókst svona líka ljómandi vel

Ég held að ég geti sagt að málþingið hjá MS-félaginu um helgina hafi tekist með afbrigðum vel. Mætingin var góð - fullt af andlitum sem ég hafði aldrei sé áður og erindin voru fróðleg og skemmtileg.

Garðar Sverrisson fór t.d. alveg á kostum í umfjöllun um réttindabaráttu öryrkja í gegnum árin í erindi sem hann kallaði Barátta okkar og viðhorf. Það skemmdi heldur ekki fyrir hversu pólitískur hann leyfði sér að vera. Ekki það að það sé erfitt að vera harðpólitískur þegar að kjara- og réttindamálum öryrkju kemur. Það krefst hinsvegar ákveðins kjarks að ganga jafn hreint vil verks í gagnrýni á ráðandi öfl og jafnvel hugmyndir öryrkja sjálfra og hann gerði. Svoleiðis löguðu þurfum við mun meira af.

Útlendingarnir sem hingað komu voru bara hressir og skemmtilegir. Sáu þó Bláa Lónið í einhverjum óþarfa hillingum. Fór sjálf tvær ferðir þangað. Það er óverkill á einni helgi. Ein ferð á tveggja ára fresti er að mínu mati hæfilegur skamtur.

2 Responses to “Málþingið tókst svona líka ljómandi vel”

  1. Le gaston Says:

    Tja, gaman væri að sjá erindi Garðars á prenti, ha?

  2. Steinunn Þóra Says:

    Já, það væri gaman. Garðar talaði hinsvegar alveg blaðlaust, án allra punkta enda afbragðs ræðumaður. Það væri því óskandi að einhver hafi setið með upptökutæki úti í sal. Svo veit ég líka um nokkra sem tóku niður punkta. Nú þyrfti að fara að vinna eitthvað úr þeim.