Ég er ofuránægð með manninn minn í dag
Friday, March 26th, 2004Er það réttlætanlegt að fyllast stolti yfir manninum sínum þegar einhver kona úti í bæ úthúðar honum í grein í Mogganum? Ég er bara ekki fjarri því að það sé hið besta mál og tel að eðlilegri viðbrögð en stolt séu varla til við svona skrifum. Ef einhver er í vafa er um að gera að lesa þessa stórfyndnu blaðagrein.
* * *
Ég er ekki enn búin að gera skattskýrsluna mína. Það er náttúrulega hrilklegur aumingjaskapur því ég hef lúmskan grun um að það taki u.þ.b. 5 mínútur. Nú einset ég mér að gera það þegar ég kem heim á eftir.
* * *
Þórey hringdi í mig frá DK í dag. Hún er komin með nýtt barn í bumbuna. Það voru gleðilegar fréttir. Hún er að koma heim til Íslands í smá skrepp. Vonadi getum við náð að hittast aðeins en eins og venjulega ætlar hún ekki að eyða neinum tíma í höfuðborginni heldur fara beint heim í sveitasæluna.