Smekkvísi eða ekki smekkvísi - það er nú spurningin
Í dag fór ég á hádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknarstofu í Kvennafræðum, þar sem Valgerður H. Bjarnadóttir, MA í femínískri trúarheimspeki hélt erindið:
Vanadís, völva og valkyrja - fornar birtingarmyndir gyðjunnar, endurspeglaðar úr minni íslenskrar konu. Það var mjög áhugavert og eiginlega ætti maður að vinna í því að fá þetta erindi haldið á vegum Ásatrúarfélagsins, þar sem það myndi sóma sér ansi vel á samkundu slíkra manna.
Svo fór ég í Smáralind. Hitti Stefán þar og tók þátt í að koma honum í skyrtu fyrir GB keppni dagsins. Ætta ekki að leggja það fyrir mig að vera tískuráðunautur. Það er greinilega ekki skemmtilegt starf. Allavega ekki þegar úrvalið í búðinni er jafn dapurt og það var í þatta skipti.
Ástæðan fyrir því að ég fór í Smáralind var þó ekki áhyggjur af ósmekkvísi Stefáns í fatavali heldur það að við ætluðum að kaupa okkur rauðvínsrekka. Smekkvísi okkar samanlögð kom þó í veg fyrir nokkrar slíkar fjárfestingar.
En það verður aldeilis spennandi að sjá hvernig nýja tískutröllið, eða er e.t.v. ekki betra að segja tískujötuninn Stefán tekur sig út á sjónvarpsskjánum í kvöld.
Á hann að kaupa skyrtuna eða væri kannski bara betra að sleppa því?
February 26th, 2004 at 10:28 pm
Já, mér finnst eiginlega að hann eigi að kaupa skyrtuna. Hún er að minnsta kosti ekki svartur bolur með slagorðum á! Þótt þeir geti reyndar verið ágætir.
Ég legg líka til að þú fáir línu í kynningunni í Gettu betur. Fyrst það er sérstaklega nefnt í hvaða búð fatnaður Stefáns er seldur er eðlilegt að nefna líka tískuráðunaut hans.
February 27th, 2004 at 9:23 am
Ég held bara að hann ætti að skella sér á hana! Svo skil ég ekkert í liðunum að vera ekki búin að stúdera þig betur - þá hefðu að minnsta kosti komið tvö önnur stig í gær!
February 27th, 2004 at 9:26 am
Já, það var mjög fyndið hvað það voru margar spurningar sem tengdust þér, Steinunn.
February 27th, 2004 at 1:40 pm
Já, ég ætti náttúrulega að vera sárlega móðguð yfir þekkingarleysi menntskælinga á mér ;o)
March 2nd, 2004 at 10:05 pm
Konur eru svo flókið fyrirbæri að það er til heil fræðigrein um þær, kvennafræði.
March 3rd, 2004 at 2:04 pm
Ég veit það maður. Við erum æði!!