Atburðir liðinna daga
Sökum gríðarlegra anna hefur orðið bloggfall hjá mér. En þá er bara að demba sér í smá upprifjun á atburðum liðinna daga.
Matarboðið, þar sem við fengum Ernu til okkar tókst þetta líka ljómandi vel. Við vorum öll þó frekar þreytt og hálf illa fyrir kölluð daginn eftir. En þannig er það bara stundum eftir góð boð.
Fimmtudagurinn fór í að sofa, læra og sitja fundi. Það var svosem alveg ágætt.
Skrópaði þó á miðnefndarfundi þar sem hann rakst á annan fund.
Föstudagurinn var framanaf ekki sérlega eftirminnilegur. Síðdegis var þó haldið upp á afmæli VG. Stefán lóðasði okkur í ljómandi skemmtilegum, en hrikalega köldum, göngutúr um Elliðaárdalinn. Það var alveg með eindæmum hversu mikið ég gat snýtt mér eftir þá ferð.
Um kvöldið var svo haldið í aðra afmælisveislu, nánar tiltekið til Salnýar. Þar bárust okkur þær gleðifréttir að Salný væri með barni og kemur því til með að fjölga enn meira í vinahópnum. Helgi Gnýr sem er nýjasti og jafnframt yngsti meðlimur hópsins mætti einnig í þessa veislu og skemmti öllum viðstöddum með bergmáls effektum sínum.
Laugardagurinn var undirlagður af aukaaðalfundi UVG (en vefurinn varð eins og einhverjir kunna að vita fyrir áras tölvuþrjóta og er ekki enn alveg búin að ná sér fullkomlega). Þar var kjörin ný stjórn og nýr formaður er Oddur Ástráðsson .
Það var svo auðvitað ekki hægt að stilla sig um að fara á UVG djamm um kvöldið. Eftir ekki nógu góðan mat á Vegamótum en skemmtilega samverustund var haldið á Dillon þar sem ölið var kneyfað langt fram eftir nóttu. Snemma kvölds datt ég niður í mjög svo áhugaverðar umræður við Gvendinn. Hann bauð fram krafta sína ef röskan mann vantaði í vinnu fyrir
Síðarihluta kvöldsins (fyrripart nætur) eyddi ég hinsvegar í hörkusamræðum við Dag sem ég hef fram til þessa lítið talað við og raunar ekki þekkt mikið. Honum (eins og reyndar Gvendi líka) gekki ekki nógu vel í kosningunum til stjórnar UVG en það gengur bara vonandi betur næst. Vona að ég hafi ekki alvega gert hann óðan með einhverjum deleringum.
Semsagt alveg stórgott kvöld!!
Í dag skal hinsvegar lesið.