Enginn titill passar við þessa færslu!
Bryndís litla virðist alveg vera að fara yfirum af prófstressi. Það er ekki gott. Og máltækið “Það sem ekki drepur mann herðir mann” virðist ekki eiga við í þessu tilfelli. Allavega er Bryndís hvorki hörnuð né dauð og hefur hún þó að því er ég best veit tekið nokkur próf um æfina.
* * *
Stefnan er tekin á matarinnkaup núna á eftir. Ernu (sem er vöknuð til blogglífsins) er nefninlega boðið í mat í kvöld og mat er erfitt að elda nema maður eigi mat. Það verður gaman. Þó meira að fá Ernu í mat en að versla í matinn.
February 7th, 2004 at 11:00 am
Mér finnst að titillinn sem aldrei kom hefði átt að snúast um mig, hvað ég er skemmtileg, heillandi og svo framvegis.
Kveðja, Bryndís sem er nú tímabundið íbúi á Einarsnesi