Ýsa og ofbeldi
Mamma bauð okkur Stefáni í mánudagsfisk í gær. Þverskorin ýsa og hrogn. Hún var reyndar svo hugulsöm að hún sleppti lifrinni. Ummm - ég var eiginlega búin að gleyma hvað þverskorin ýsa er hrikalega góð. Allavega svona nokkrum sinnum á ári.
* * *
Í gærkvöldi lauk ég loks við að koma Ofbeldisannál herstöðvabaráttunnar á tölvutækt form. Tilraunir manna til að skanna hann gengu ekki svo ég tók að mér það frábæra verkefni að pikka hann inn í tölvu. En þetta voru nú líklega ekki nema um 17 síður og hvað gerir maður annars ekki fyrir málstaðinn?!