Archive for February, 2004

Guðsteinn mun hafa vinninginn

Friday, February 27th, 2004

Stefán var sjálfur ekki að fíla skyrtuna neitt sérstaklega svo líklega verður ekkert úr þeirri fjárfestingu. Að auki er metraverðið á þeim efnisstranga sem skyrtan er saumuð úr sérlega hátt. Ætli við förum ekki bara saman í Guðstein og finnum einhverja fína skyrtu þar. Fyrst ég get fúnkerað sem tískuráðunautur í Ellingsen hlýt ég líka að geta það hjá Guðsteini.

En hvað segir það okkur eiginlega um hæfileika mína sem tískulögga?

Líklega það að ég sé alveg frábær !!

Smekkvísi eða ekki smekkvísi - það er nú spurningin

Thursday, February 26th, 2004

Í dag fór ég á hádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknarstofu í Kvennafræðum, þar sem Valgerður H. Bjarnadóttir, MA í femínískri trúarheimspeki hélt erindið:
Vanadís, völva og valkyrja - fornar birtingarmyndir gyðjunnar, endurspeglaðar úr minni íslenskrar konu. Það var mjög áhugavert og eiginlega ætti maður að vinna í því að fá þetta erindi haldið á vegum Ásatrúarfélagsins, þar sem það myndi sóma sér ansi vel á samkundu slíkra manna.

Svo fór ég í Smáralind. Hitti Stefán þar og tók þátt í að koma honum í skyrtu fyrir GB keppni dagsins. Ætta ekki að leggja það fyrir mig að vera tískuráðunautur. Það er greinilega ekki skemmtilegt starf. Allavega ekki þegar úrvalið í búðinni er jafn dapurt og það var í þatta skipti.

Ástæðan fyrir því að ég fór í Smáralind var þó ekki áhyggjur af ósmekkvísi Stefáns í fatavali heldur það að við ætluðum að kaupa okkur rauðvínsrekka. Smekkvísi okkar samanlögð kom þó í veg fyrir nokkrar slíkar fjárfestingar.

En það verður aldeilis spennandi að sjá hvernig nýja tískutröllið, eða er e.t.v. ekki betra að segja tískujötuninn Stefán tekur sig út á sjónvarpsskjánum í kvöld.

Á hann að kaupa skyrtuna eða væri kannski bara betra að sleppa því?

Ráðherra smáðherra

Wednesday, February 25th, 2004

Nýja lúkkið á Páli er hrikalega kúl…og auðvitað vill enginn fá Halldór Ásgrímsson sem forsætisráðherra. Reyndar finnst mér bara óhuggulegt að eingver vilji fá nokkurn þann sem er ráðherra á Íslandi í dag sem ráðherra…nokkru sinni.

Á þessu átti ég nú síður von

Saturday, February 21st, 2004



You’re The Fellowship of the Ring!
by J.R.R. Tolkien
Facing great adversity, you have decided that your only choice is to
unite with your friends and neighbors. You have been subject to a ton of squabbling and
ultimately decided that someone humble is your best candidate for a dangerous mission.
You’re quite good with languages and convinced that not all who wander are lost. If you
see anyone in black robes on horseback, just run. That’s just common sense.


Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.

Símon er lasinn…

Tuesday, February 17th, 2004

…með gólftusku um hálsinn

Ég hef hor í nös og hellu í eyrum. Það sem ég held að ég hafi sinnt öllum þeim helstu verkefnum sem ætlast var til að ég sinnti í dag verður nú farið heim og sængin toguð upp að höku.

Ætla bara að lesa skólabækur sem eru á íslensku í dag. Annars gæti hausinn sprungið.

Frábær frammistaða hjá mér

Thursday, February 12th, 2004

Það er svo ótrúlega góð tilfinning að finnast maður hafa komið einhverju mikilvægu sem maður hefir trassað lengi í verk…og nei, ég tók ekki til í innhólfinu mínu.

Hinsvegar settist ég niður í gærkvöldi og gekk frá dagskránni fyrir málþing á vegum NYMS, sem haldið verður í byrjun mars (kannski ekki seinna vænna). Miklu fargi er af mér létt. Vona bara að öðrum sem málið virkemur finnist þetta jafn frábærlega gert hjá mér og mér sjálfri einmitt finnst.

Það er þó ekki eins og öll vinnan sé búin því ég enn er eftir að snara þessu öllusaman yfir á dönsku (eða skandínavísku). Það verður stuð.

Hreingerningar sé þörf

Wednesday, February 11th, 2004

Mér til mikillar hrellingar hef ég grun um að ég verði að fara að taka til í innhólfinu mínu. Annarsvegar vegna þess að ég er alveg hætt að finna þau praktísku skjöl sem ég geymi þar…þar sem innhólfið mitt fúnkerar sem nokkurskonar bókhald. Hinsvegar segir einhver teljari mér að ég sé búin með 80% af plássinu. Það veldur mér þó minni áhyggjum.

Ég er þó ekki viss um að að þessari tiltekt komi fyrr en þessi 20% verða uppurin. Þangað til mun ég nota jafn mikinn tíma til að leita að bréfum og tiltektin sjálf myndi taka.

…matur…

Tuesday, February 10th, 2004

Sökum lærdóms og vafsturs fyrir VGR er ég nú aðframkomin af hungri…

Atburðir liðinna daga

Sunday, February 8th, 2004

Sökum gríðarlegra anna hefur orðið bloggfall hjá mér. En þá er bara að demba sér í smá upprifjun á atburðum liðinna daga.

Matarboðið, þar sem við fengum Ernu til okkar tókst þetta líka ljómandi vel. Við vorum öll þó frekar þreytt og hálf illa fyrir kölluð daginn eftir. En þannig er það bara stundum eftir góð boð.

Fimmtudagurinn fór í að sofa, læra og sitja fundi. Það var svosem alveg ágætt.
Skrópaði þó á miðnefndarfundi þar sem hann rakst á annan fund.

Föstudagurinn var framanaf ekki sérlega eftirminnilegur. Síðdegis var þó haldið upp á afmæli VG. Stefán lóðasði okkur í ljómandi skemmtilegum, en hrikalega köldum, göngutúr um Elliðaárdalinn. Það var alveg með eindæmum hversu mikið ég gat snýtt mér eftir þá ferð.

Um kvöldið var svo haldið í aðra afmælisveislu, nánar tiltekið til Salnýar. Þar bárust okkur þær gleðifréttir að Salný væri með barni og kemur því til með að fjölga enn meira í vinahópnum. Helgi Gnýr sem er nýjasti og jafnframt yngsti meðlimur hópsins mætti einnig í þessa veislu og skemmti öllum viðstöddum með bergmáls effektum sínum.

Laugardagurinn var undirlagður af aukaaðalfundi UVG (en vefurinn varð eins og einhverjir kunna að vita fyrir áras tölvuþrjóta og er ekki enn alveg búin að ná sér fullkomlega). Þar var kjörin ný stjórn og nýr formaður er Oddur Ástráðsson .

Það var svo auðvitað ekki hægt að stilla sig um að fara á UVG djamm um kvöldið. Eftir ekki nógu góðan mat á Vegamótum en skemmtilega samverustund var haldið á Dillon þar sem ölið var kneyfað langt fram eftir nóttu. Snemma kvölds datt ég niður í mjög svo áhugaverðar umræður við Gvendinn. Hann bauð fram krafta sína ef röskan mann vantaði í vinnu fyrir sha og ekki ólíklegt að hann verði tekinn á orðinu með það áður en langt um líður.

Síðarihluta kvöldsins (fyrripart nætur) eyddi ég hinsvegar í hörkusamræðum við Dag sem ég hef fram til þessa lítið talað við og raunar ekki þekkt mikið. Honum (eins og reyndar Gvendi líka) gekki ekki nógu vel í kosningunum til stjórnar UVG en það gengur bara vonandi betur næst. Vona að ég hafi ekki alvega gert hann óðan með einhverjum deleringum.

Semsagt alveg stórgott kvöld!!

Í dag skal hinsvegar lesið.

Enginn titill passar við þessa færslu!

Wednesday, February 4th, 2004

Bryndís litla virðist alveg vera að fara yfirum af prófstressi. Það er ekki gott. Og máltækið “Það sem ekki drepur mann herðir mann” virðist ekki eiga við í þessu tilfelli. Allavega er Bryndís hvorki hörnuð né dauð og hefur hún þó að því er ég best veit tekið nokkur próf um æfina.

* * *

Stefnan er tekin á matarinnkaup núna á eftir. Ernu (sem er vöknuð til blogglífsins) er nefninlega boðið í mat í kvöld og mat er erfitt að elda nema maður eigi mat. Það verður gaman. Þó meira að fá Ernu í mat en að versla í matinn.