Archive for January, 2004

Skólalíf

Wednesday, January 7th, 2004

Mætti í morgun upp í Háskólabíó þar sem ég taldi mig eiga að mæta í fyrsta tímann í kúrsinum Menningarsvæði. Kennsla í mannfræði byrjar hinsvegar ekki fyrr en eftir viku svo ég fór bara heim og hélt áfram að lesa Rebus.

Seinnipartinn mætti ég svo í tíma í námskeiðinu Þættir út sögu og heimspeki vísindanna hjá Skúla Sigurðssyni. Leist óskaplega vel á námskeiðið og ætla því að mæta glaðbeitt og skrá mig í það til 5 eininga á morgun.

Vonbrigði

Tuesday, January 6th, 2004

Þá er Stefán farinn til Noregs. Vinnuvetendur hans virðast óttast að hann ætli á símafyllerí þarna úti og hafa því gert símann hans óvirkan í útlöndum. Þ.e.a.s. þannig óvirkan að hann getur hvorki hringt sjálfur né sent sms. Það ætti því enginn að gera ráð fyrir að hann svari sms-um um veruna í Osló.

* * *

Ég hlustaði á dráttinn í Kastljósinu vegna GB í útvarpinu í bílnum mínum. Mér fannst stelpurnar ótrúlega duglegar að hafa lagt skammstöfun hvers einasta skóla á minnið og var eiginlega bara orðin spent hvort þær kæmust í gegnum þetta allt saman án þess að klúðra skammstöfun. Það var því ekkert smá anti-klímax að sjá endursýninguna í sjónvarpinu og sjá að skammstafarnirnar voru allar skrifaðar á miðana…

Góður draumur

Monday, January 5th, 2004

Í nótt dreymdi mig að mér var gefinn fullur poki af allskonar flottum skóm. Það var góður draumur!

* * *

Hef ákveðnar áhyggjur af sambandsleysinu sem virðist vera milli augna og heila hjá mér. Núna rétt áðan stóð Marvin rétt fyrir framan mig og veifaði mér. Ég horfði bara á hann sljóum augum og það liðu nokkrar sekúndur þar til ég fattaði að hann væri að reyna að ná sambandi við mig.

Vaknað af jóladvala

Sunday, January 4th, 2004

Úff. Þvílíkt jólahýði sem ég skreið inní. Er þó svona smám saman að vakna til lífsins á ný. Annars hefur þetta verið hið huggulegasta jólafrí.

Það var svolítið skrítið að fara austur svona rétt fyrir jólin og tilefnið ekki beint það skemmtilegasta. Ferðin var þó bara alveg ótrúlega ánægjuleg og ég held að pabba hafi bara fundist fínt að fá okkur Stebba í heimsókn í nokkra daga.

Jólin og áramótin hafa svo liðið ótrúlega þægilega með heilum ósköpum af allskonar boðum en bókalestri á milli. Náði svo í gær að hitta Bryndísi í afmæliskaffi hjá litla krílinu henni systur minni sem er víst orðin 19 ára. Ekki lágur aldur það…