Úrvinda eftir átök helgarinnar
Úff, það er svo hrikalegt að koma þreyttari undan helgi en maður fer inn í hana. Þannig er einmitt ástandið á mér í dag. Ætla að reyna að bjarga því sem bjargað verður með því að fara að sofa fyrir allar aldir í kvöld.
Blótið var eins og vænta mátti fínt. Allskonar merkilegir tónlistargjörningar sem virðast vera að verða nokkuð fastir liðir - enda er Alsherjargoðinn snillingur á þessu sviði.
Atmælisboð Ernu (sem heldur því fram að hún sé ekki aldeilis hætt að blogga (?!)) var heldur ekki af verri endanum, þó ég hafi kannski teymt Stefán heim óþarflega snemma. Íbúðin hennar fannst mér t.d. alveg hrikalega flott.
En núna er semsagt bara að þrauka vakandi í nokkra klukkutíma enn…